Flughált í Hrútafirði og að Laugarbakka

Á Norðurlandi er hálka eða hálkublettir á flestum vegum. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er flughált í Hrútafirði og að Laugarbakka. Í veðurkortum Veðurstofu Íslands er vaxandi suðaustanátt, 8-15 m/s og rigning undir hádegi. Hægari sunnanátt í kvöld og styttir upp.

Síðdegis á morgun er spáð vaxandi suðaustanátt og þykknar upp. Hiti 1 til 7 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á miðvikudag:
Gengur í suðaustan 10-20 m/s, hvassast með SV-ströndinni seinnipartinn. Rigning eða súld S- og V-lands, en bjart að mestu á N- og A-landi. Hlýnandi, hiti 3 til 8 stig síðdegis.

Á fimmtudag:
Suðlæg átt, 3-8 m/s en 8-13 m/s með austurströndinni. Dálítil rigning A-lands og hiti 2 til 7 stig en úrkomulítið á V-verðu landinu og hiti kringum frostmark.

Á föstudag:
Hæg suðaustan eða breytileg átt. Dálitlir skúrir eða él við ströndina, en yfirleitt skýjað en úrkomulítið inn til landsins. Hiti um frostmark, en frost 2 til 7 stig í innsveitum.

Á laugardag:
Suðvestanátt 8-13 m/s með éljum um vestanvert landið en hægari og léttir til NA- og A-lands. Kólnandi veður.

Á sunnudag:
Útlit fyrir austanátt með rigningu eða slyddu sunnan og vestantil í fyrstu en snýst síðan í vestan- og norðvestanátt með éljum en styttir upp SV-til. Frost um allt land.

Á mánudag:
Norðaustanátt með snjókomu norðantil en bjartviðri syðra. Kalt í veðri.

 

Fleiri fréttir