Flutningsjöfnunarstyrkir - 170 milljónir króna
Greiddar hafa verið tæplega 170 milljónir króna í svo kallaðan flutningsjöfnunarstyrk á þessu ári. Markmiðið er að styðja framleiðsluiðnað og atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni með því að jafna kostnað framleiðenda við flutning á vörum sínum. Þetta á við þá sem eru með framleiðslu og lögheimili fjarri innanlandsmarkaði eða útflutningshöfn og búa af þeim sökum við skerta samkeppnisstöðu vegna hærri flutningskostnaðar en framleiðendur sem eru nær markaðinum. Rúmlega 20 milljónir fóru á Norðurland vestra.
Á vef Byggðastofnunar segir að opnað hafi verið fyrir rafrænar umsóknir í mars en umsóknarfrestur er til 31. mars ár hvert fyrir síðastliðið almanaksár. Á þessu ári bárust umsóknir frá 63 aðilum vegna kostnaðar við flutning á árinu 2012. Samþykktar umsóknir voru 58 en 8 var synjað.
Fyrirtæki á Norðurland eystra fengu mest í sinn hlut, eða rétt tæplega 100 milljónir króna. Vestfirðir komu þar næst með tæplega 40 milljónir og Norðurland vestra með rúmlega 20 milljónir (sjá mynd). Fyrirtæki á Suðurnesjum fengu minnst, eða 243 þúsund krónur.