Flutningsjöfnunarstyrkir fyrir landsbyggðina
Á vef Byggðastofnunar eru upplýsingar um flutningsjöfnunarstyrki sem veittir eru á grundvelli laga nr. 160/2011, um svæðisbundna flutningsjöfnun.
Markmið laganna er að styðja við framleiðsluiðnað og atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni með því að jafna flutningskostnað framleiðenda sem eru með framleiðslu og lögheimili fjarri innanlandsmarkaði eða útflutningshöfn og búa þ.a.l. við skerta samkeppnisstöðu vegna hærri flutningskostnaðar en framleiðendur staðsettir nær markaði.
Nánari upplýsingar er að finna á vef Byggðastofnunar.