Fluttu litla stúlku á sjúkrahús

Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti eins árs gamla stúlku á Landspítalann um hálf ellefu leytið í gærkvöldi en litla stúlkan hafði slasast á Hvammstanga.

Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni hafði stúlkan fengið höfuðhögg og átti í öndunarerfiðleikum.

Samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á Barnaspítala Hringsins kl. 09:47 í morgun er líðan stúlkunnar góð, en ekki eru veittar frekari upplýsingar um hana af hálfu sjúkrahússins. Mbl.is segir frá þessu.

 

Fleiri fréttir