Fluttur með sjúkraflugi eftir vinnuslys á Blönduósi

Mýflug sótti slasaðan mann á Blönduós í dag og flutti hann til Reykjavíkur en sinnir nær öllu sjúkraflugi innan Íslands samkvæmt samningi við Heilbrigðisráðuneytið. Ljósm./Myflug.is
Mýflug sótti slasaðan mann á Blönduós í dag og flutti hann til Reykjavíkur en sinnir nær öllu sjúkraflugi innan Íslands samkvæmt samningi við Heilbrigðisráðuneytið. Ljósm./Myflug.is

Ungur maður slasaðist í nokkuð al­var­legu vinnu­slysi í verk­smiðju Ístex á Blönduósi í dag. Maðurinn var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur og var notast við neyðarbraut­ina svo­kölluðu en illfært var um aðrar brautir Reykjavíkurflugvallar. Mbl.is greinir frá.  

Samkvæmt frétt mbl.is festi maðurinn fót­inn á sér í svo­kölluðum ull­ar­tæt­ara sem ríf­ur niður ull. Sam­starfs­mönn­um manns­ins tókst að losa hann en fót­ur­inn var illa út­leik­inn eft­ir slysið.

Að sögn Höskuldar Erlingssonar varðstjóra lögreglunnar á Blönduósi var óskað var eft­ir þyrlu Land­helg­is­gæsl­unn­ar til þess að flytja mann­inn en það gekk ekki upp. Þá vildi svo heppi­lega til að sjúkra­flug frá Mý­flugi var að ljúka sjúkra­flugi frá Ak­ur­eyri til Reykja­vík­ur og gátu þeir flutt manninn suður. 

Veður­skil­yrði voru alls ekki góð á Blönduósi í dag, bæði Holta­vörðuheiði og Öxna­dals­heiði voru ófær­ar og því eng­in önn­ur úrræði sem stóðu til boða en flug­leiðin. „Þess­ir menn eru al­gjör­ar hetj­ur,“ sagði Hösk­uld­ur um Mý­flugs­menn í samtali við mbl.is.

Þá segir Hösk­uld­ur að á svona dög­um sýni það sig ber­sýni­lega hversu mikið hags­muna­mál það sé fyr­ir lands­byggðarfólk bæði að hafa flug­völl og að fært sé til Reykja­vík­ur. 

Fleiri fréttir