FNV fær góða gjöf

Málmiðnadeild FNV barst góð gjöf frá Skagafjarðarveitum í vetur sem eykur notkunarmöguleika CNC fræsivélarinnar til mikillar munar til hverskonar smíði. Gjöfin er patróna ofan á 4. og 5. ásinn á fræsivélinni en í hana er smíðastykki fest. Að sögn Geirs Eyjólfssonar kennara er nú loksins hægt að nota alla möguleika vélarinnar sem er ein af nýrri vélum hátæknisetursins.

-Þessi gjöf hefur komið sér afskaplega vel og gott að vita af svona velvilja fyrirtækja í bænum, segir Geir. Á myndinni er Gunnar Björn Rögnvaldsson frá SKV á milli kennaranna Björns Sighvatz, og Geirs Eyjólfssonar.

 

Fleiri fréttir