FNV hlýtur styrki til þróunar nýrra námsbrauta
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra fékk í dag fjóra styrki samtals að upphæð kr. 10.372.000 frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu til að þróa nýjar námsbrautir.
Á heimasíðu skólans segir að af þessari upphæð skiptast 4.500.000 á milli FNV, Fjölbrautaskóla Snæfellinga og Menntaskólans á Tröllaskaga.
Skipting styrkjanna er sem hér segir:
- Fisktækninám í samstarfi við Menntaskólann á Tröllaskaga og Fjölbrautaskóla Snæfellinga, styrkur að upphæð kr. 4.500.000.
- Námsbraut fyrir slátrara, kr. 2.000.000.
- Námsbraut í kvikmyndagerð, kr. 1.928.000
- Starfsnám með áherslu á verklega nýsköpun og tæknilegar greinar, kr. 1.944.000