FNV og Háskólinn í Reykjavík hefja samstarf
Kennarar og nemendur í áfanga um tölvuleiki og sýndarveruleika,TÖLE2IG05, eiga nú í samstarfi við Háskólann í Reykjavík og fyrirtækið Myrkur Software. Samstarfið felst m.a. í aðgangi að verkefnum frá HR.
Á heimasíðu FNV segir að Myrkur Software framleiði kennslumyndir sem eru unnar upp úr inngangsáföngum í HR og veitir ráðgjöf um kennslu. Myrkur Software mun einnig hjálpa til við uppsetningu á sýndarveruleikabúnaði sem notaður verður í áfanganum.
Hér er dæmi um kennslumynd í áfanganum
Miklir möguleikar eru fólgnir í sýndarveruleika og í rauninni ekkert sem stöðvar nema hugmyndaflugið. Hér eru tvö dæmi, Mannslíkaminn og Teikning í þrívídd.
Kennarar áfangans eru Grétar Karlsson og Kristján B. Halldórsson.