Folaldasýning í Arnargerði

Hrossaræktarsamtökin í Austur-Húnavatnssýslu fyrirhuga að halda folaldasýningu sunnudaginn 20. janúar í Reiðhöllinni í Arnargerði á Blönduósi ef næg þátttaka næst. Samkvæmt Húna.is velur dómari besta folaldið í flokkum hesta og hryssa en áhorfendur velja álitlegasta folaldið í sömu flokkum.

Skráning á netföngin thp@bondi.is og hrima@hrima.is fyrir 17.janúar. Veglegir folatollar  verða í verðlaun

 

Fleiri fréttir