Fólk í hrakningum á Holtavörðuheiði
Björgunarsveitir voru kallaðar út í gærkvöldi til að aðstoða ökumenn sem sem lentu í vandræðum á Holtavörðuheiði en þar gerði mikla ófærð og afar slæmt veður. Að sögn lögreglunnar á Blönduósi varð ekki mikið óveður í byggð.
Ekki gekk að aðstoða alla með farartæki sín niður af Holtavörðuheiðinni og voru nokkrir bílar skildir eftir en fólkið flutt til byggða og margir þáðu gistingu í Reykjaskóla í nótt. Bílarnir verða svo sóttir þegar færð og veður leyfir.
Ekki var um önnur útköll að ræða vegna veðurs enda ekki svo hvasst í byggð að sögn lögreglunnar á Blönduósi.