„Foreldrar uggandi yfir stöðu mála“
Stjórn Heimilis og skóla vill ítreka áhyggjur sínar af gangi kjaraviðræðna framhaldsskólakennara og yfirvalda. Samkvæmt ályktun sem stjórn Heimilis og skóla sendi frá sér er verkfallið þegar farið að hafa neikvæð áhrif á nám nemenda og foreldrar eru uggandi yfir stöðu mála.
„Foreldrar biðja deiluaðila að hafa í huga hversu alvarlegt það er fyrir einstaklinga og samfélagið ef verkfallið veldur brottfalli úr námi. Deiluaðilar eru hvattir til að funda á hverjum degi og forgangsraða áherslum í þágu nemenda,“ segir í ályktuninni.
Þá hvetur Heimili og skóli alla aðila skólasamfélagsins til að styðja við nemendur á meðan verkfallið stendur yfir. Skólastjórar, sveitarfélög og fyrirtæki eru hvött til að taka þátt í að auðvelda nemendum að halda jafnvægi í náminu. Nemendur eru hvattir til að stunda námið af kappi á meðan verkfallið stendur yfir.
„Nú er mikilvægt að halda einbeitingu og halda náminu áfram þótt aðstæður séu erfiðar. Nemendafélög framhaldsskólanna eru áfram hvött til að standa fyrir hvers kyns námshvetjandi viðburðum fyrir nemendur á meðan verkfallið stendur yfir,“ segir í ályktuninni.
Þá ítrekar stjórn Heimilis og skóla mikilvægi þess að foreldrar styðji við nemendur og hvetji þá til að stunda námið. Sýnt hefur verið fram á að jákvæðar og uppbyggjandi samræður foreldra við nemendur um námið hafa bein áhrif á árangur.