Forsala hefst á morgun

Þann 23. október sl. hefði Stefán R. Gíslason tónlistarkennari, kórstjóri og organisti í Varmahlíð orðið sjötugur. Þann sama dag sagði sr. Gísli Gunnarsson á Hólum frá því á Facebook síðu sinni að hann hefði ákveðið, í samráði við fjölskyldu Stefáns, að stofna minningarsjóð í hans nafni.  Nú hefur verið ákveðið að halda tónleika í fjáröflunarskyni fyrir sjóðinn.

Það eru þeir frændur sr. Gísla og Atla Gunnar Arnórsson, formann Karlakórsins Heimis sem skipuleggja tónleikana sem haldnir verða í Miðgarði að kvöldi sumardagsins fyrsta, þann 24. apríl kl. 20.00. Forsala hefst á morgun þriðjudaginn 22. apríl í Miðgarði og miðvikudaginn 23. apríl, frá kl. 15:00 - 19:00 báða dagana. 

Á tónleikunum koma fram Karlakórinn Heimir, Kirkjukór Glaumbæjarprestakalls, bræðurnir frá Álftagerði þeir Óskar, Pétur og Gísli ásamt Agnari, Jóel, Ísaki og Atla Gunnari undir stjórn Valmar Väljaots og harmonikkutríó sem skipað er þeim Jóni Þorsteini Reynissyni, Ísaki Agnarssyni og Guðmundi Smára Guðmundssyni.

Tónleikarnir eru haldnir í samstarfi aðstandendur Stefáns til þess að heiðra minningu hans, en hann hafði mikil áhrif á tónlistar og menningarlíf Skagafjarðar, bæði sem organisti og kórstjóri en einnig sem tónlistarkennari og hljómsveitarmeðlimur.

Miðinn kostar 6000 krónur og allur ágóði af tónleikunum mun renna í þennan sjóð, og vonandi verður hægt að veita styrki úr honum strax á þessu ári.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir