Fossar í Húnaþingi
Fyrsta einkasýning Höskuldar B. Erlingssonar
Höskuldur Birkir Erlingsson heldur ljósmyndasýningu á kaffihúsinu Ömmukaffi á Blönduósi. Sýningin hefur hlotið nafnið „ Fossar í Húnaþingi“ og er henni ætlað að vekja athygli á þeim fallegu fossum sem Húnvetningar eiga.
Myndirnar eru í svarthvítu og teknar á árunum 2014 og 2015. Þeir fossar sem að húnvetnsku árnar skarta eru margir hverjir mikilfenglegir og ekki á allra vörum. Listinn er ekki tæmdur með þessari sýningu og ljóst að hægt er að ljósmynda marga fleiri.
Þetta er fyrsta einkasýning Höskuldar og eru allir velkomnir og hvattir til að kíkja á Ömmukaffi, fá sér rjúkandi heitt kaffi og með því, horfa á sýninguna og njóta ljósmyndanna. Sýningin er styrkt af Menningarráði Norðurlands vestra.
Fréttatilkynning