Föstudagur í Húnavöku

Eins og Feykir hefur sagt frá hófst Húnavaka á Blönduósi formlega í gærkvöldi. Nú stendur yfir bein útsending frá Blönduósi í þættinum Virkir morgnar, eða Sumar morgnar eins og hann kallast þessa dagana.

Stóri fyrirtækjadagurinn hefst kl 12. Fyrirtækin N1 píparinn, Ístex, Bifreiðaverkstæði Blönduóss, Ísgel, Átak og Léttitækni taka á móti gestum og opna fyrirtæki sín að Efstubraut. Grill og gaman frá kl. 12 til 16. SAH afurðir taka á móti gestum frá kl. 13 til 15 í höfuðstöðvum fyrirtækisins. Þar verður grill, kynning á vörum og Húnavökutilboð á grillkjöti.

Samkaup verða með ís í boði fyrir börnin frá kl. 14, á meðan birgðir endast og þar verða ýmis tilboð í gangi. Stígandi tekur á móti gestum frá kl. 12 til 17 og Vilkó á sama tíma. Þar verða léttar veitingar í boði og Húnavökutilboð á vörum fyrirtækisins.

Bókamarkaður opnar í Héraðsbókasafninu kl. 14 og verður opið til 18. Á sama tíma verður veltibíllinn í boði TM staðsettur á plani við félagsheimili. Aðgangur að honum er ókeypis. Laser tag og paint ball opna kl 16. Sirkus Ísland sýnir Heima er best kl. 16 og fullorðinssýninguna Skinnsemi kl 20.

Frá 17 til 19 verður tekið á móti sultum á Hótel Blönduísi en þar mun dómnefnd sjá um smökkun og gefa einkunnir fyrir bragð, útlit og fallegustu krukkuna. Verðlaunahafi verður krýndur á laugardagskvöldið. Klukkan 20 hefst svo stórleikur Kormáks/Hvatar og KB á Blönduósvelli en liðið leika í 4. deild karla í knattspyrnu. Deginum lýkur svo með 16 ára balli með Steinda JR, Bent og félögum í Félagsheimilinu.

Ljósmyndasýning áhugaljósmyndaranna Höskuldar B. Erlingssonar, Róberts Daníels Jónssonar og Daníels Mána Róbertssonar opnaði kl átta í morgun í íþróttahúsinu og þar er opið til kl. 21 í kvöld. Sýningin, sem er sölusýning, er prýdd fuglaljósmyndum sem þeir félagar hafa tekið. Myndir eru til sýnis bæði í anddyrinu og heitu pottunum.

Opið er í Heimilisiðnaðarsafninu frá kl. 10-17 og er vakin athygli á sérsýningu sumarsins Fínerí úr forum formæðra. Laxasetrið er opið frá kl. 11-17. Hafíssetrið er einnig opið frá 13 til 17 og Textílsetur Íslands á sama tíma. Þar eru sýningar á jurtalituðu bandi og vörum Guðrúnar Bjarnadóttur, náttúrufræðings frá Hespuhúsinu. Minjastofa Kvennaskólans og Vatnsdæla á refli.

Hestaleigan Galsi er með opið alla helgina og flugklúbbur Blönduóss bíður upp á útsýnisflug, gegn pöntunum, ef veður og aðstæður leyfa.

Fleiri fréttir