Frá hitaveitu RARIK á Blönduósi

Þegar nýja aðveituæðin frá Reykjum til Blönduóss var tekin í notkun sl. þriðjudag tæmdist mest allt dreifikerfi hitaveitunnar. Verulegt magn af lofti komst þá inná kerfið. Lofttappar myndast oft í lögnunum og valda þeir stundum því að rennslið stöðvast eða minnkar verulega.

Mörg húskerfi eru með sjálfvirkum aflotunarbúnaði en alltaf má búast við því að grípa þurfi inní við svona óvenjulegar aðstæður.

Ráðlagt er að aflofta kerfin með loftskrúfunum sem eru á ofnunum en sum kerfi svo sem gólfhitakerfi þarft að aflofta með öðrum hætti.

Loftið í dreifikerfinu fer nú ört minnkandi og vonandi líkur þessu sem allra fyrst.

/RARIK hitaveitur

 

Fleiri fréttir