„Frábærir tónleikar og yndisleg upplifun“
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Listir og menning
19.03.2014
kl. 08.55
Stofutónleikar fóru fram á Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi sl. sunnudag, þar sem Ellen Kristjánsdóttir söngkona og Eyþór Gunnarson tónlistarmaður heilluðu tónleikagesti. „Það má segja að þau Ellen og Eyþór hafi heillað tónleikagesti með tónlistarflutningi og einstakri nærveru,“ segir um tónleikana á heimasíðu safnsins.
Inn á milli laga var spjallað og slegið á létta strengi og fram kemur á síðunni að vegna nálægðarinnar myndaðist góð og lifandi stemmning. Um 50 manns sóttu tónleikana og þáðu kaffi og meðlæti að þeim loknum. „Frábærir tónleikar og yndisleg upplifun,“ segir á vefnum.
Fleiri myndir má skoða á heimsíðu safnsins.