Fræðslufundur um landbúnað og aðalfundur FUBN

Fræðslufundur um landbúnaðarmá l verður haldinn í Hlíðarbæ í Eyjafirði 26. febrúar næstkomandi kl 13:00. Sérfræðingar úr ýmsum geirum landbúnaðarins halda fyrirlestra um sín fagsvið og opið verður fyrir umræður eftir hvern fyrirlestur. Meðal fyrirlesara eru Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir, Unnsteinn Snorri Snorrason, Ingvar Björnsson og Eyjólfur Kristinn Örnólfsson. 

Hvetjum alla sem hafa áhuga á landbúnaði, unga sem aldna, bændur sem og aðra, til að mæta og hlýða á fróðleg erindi.
Aðalfundur félags ungra bænda á Norðurlandi verður haldinn í Hlíðarbæ í Eyjafirði 26. febrúar næstkomandi kl 16:00 strax að loknum fræðslufundinum.

Dagskrá fundarins er með eftirfarandi hætti:

  • - Árskýrsla stjórnar FUBN kynnt
  • - Kosningar í stjórn
  • - Tillögur félagsmanna
  • - Önnur mál

Þeir sem hafa áhuga á að bjóða sig fram í stjórn félagsins hafa nú nægan tíma til að íhuga framboð sitt og geta svo boðið sig fram á aðalfundinum.

Hvetjum alla sem láta sig málefni félagsins varða til að mæta og koma með tillögur á aðalfundinum!

Látum ljós okkar skína :)

Nýir félagar velkomnir

Stjórn F.U.B.N

Fleiri fréttir