Fræðslufundur um Skólavogina og Skólapúlsinn
Upplýsinga- og fræðslufundur um gagnsemi matstækjanna Skólavogin og Skólapúlsinn var haldinn í gær í fundarsal Samstöðu á Blönduósi. Talverður áhugi er á meðal sveitarstjórnarmanna og skólafólks á Íslandi að taka upp þetta kerfi og þarf ákvörðun sveitarfélaganna að liggja fyrir þann 15. desember nk.
Skólavogin byggist á norsku gæðastjórnunarkerfi sem íslensku sveitarfélögum býðst nú að gerast aðilar að. Útgáfufélag norsku sveitarfélagssambandanna, eða Kommuneforlaget-KF, hefur frá árinu 2001 þróað og haldið út umrætt gæðastjórnunarkerfi sem norsku sveitarfélögin hafa notað við mælingar á ýmsum þjónustuþáttum í starfsemi sinni og skoðar tengsl útgjalda, árangurs og gæða á þeirri þjónustu sem sveitarfélagið veitir. Fyrir nokkrum árum yfirtók norska ríkið þann hluta kerfisins sem sneri að grunnskólunum og er öllum grunnskólum þar í landi nú skylt að nota þetta gæðakerfi.
Ávinningur af umræddu gæðastjórnunarkerfi er m.a. betri yfirsýn yfir rekstur og nýtingu fjármuna, aukin innsýn í skólabraginn, auðveldar samanburð á eigin frammistöðu yfir tíma og samanburð á milli skóla og sveitarfélaga, svo fleira mætti upptelja. Nánari upplýsingar um kerfið er að finna á síðunni bedrekommune.no.
Fram kemur á vefmiðlinum nordanatt.is að Gunnlaugur Júlíusson og Valgerður Ágústsdóttir frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga kynntu matstækin fyrir fundargestum, ásamt Almari H. Halldórssyni frá fyrirtækinu Skólapúlsinum. Fundinn sóttu skólastjórnendur og sveitarstjórnamenn frá Skagafirði, Húnavatnssýslum og Bæjarhreppi.