Fræðslukvöld um skeiðþjálfun hesta
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Hestar
11.02.2014
kl. 08.46
Fræðslukvöld um skeiðþjálfun reiðhesta og keppnishesta verður haldið í Reiðhöllinni á Blönduósi miðvikudaginn 12. febrúar og hefst klukkan 19:30 með fyrirlestri. Að honum loknum verður sýnikennsla.
Meðal annars verður farið yfir hvernig best er að byggja skeiðhest rétt upp, hvernig undirbúa skal hest fyrir skeið og hvernig leggja skal á skeið.
Leiðbeinendur eru þriðja árs nemar frá Hólaskóla, Ásta Kara, Ida Thorborg og Hjörvar Ágústsson. Aðgangseyri er 500 krónur, athuga skal að ekki er tekið við greiðslukortum.