Framboð fyrir Samfylkinguna í Norðvesturkjördæmi stendur yfir

Kjördæmisráð Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi efnir til flokksvals um sæti á framboðslista flokksins vegna komandi alþingiskosninga. Fjögur efstu sætin eru bindandi þar sem jafnræðis kynja verður gætt með fléttulista. Framboðsfrestur rennur út á hádegi föstudaginn 19. október 2012.

Þeir sem hafa áhuga á framboði skulu snúa sér til Júlíusar Más Þórarinssonar formanns kjörstjórnar, julius.mar@internet.is eða í síma 862-1894.

Fleiri fréttir