Framboðslisti Framsóknar í Norðvesturkjördæmi birtur

Stefán Vagn Stefánsson skipar efsta sæti Framsóknar í Norðvesturkjördæmi.
Stefán Vagn Stefánsson skipar efsta sæti Framsóknar í Norðvesturkjördæmi.

Framboðslisti Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 25. september 2021 var samþykktur með öllum greiddum atkvæðum á fjölmennu aukakjördæmisþingi Kjördæmissambands framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi sem haldið var í fjarfundi í gær. Á heimasíðu Kjördæmissambandsins kemur fram að framboðslistinn hafi verið samþykktur með öllum greiddum atkvæðum en póstkosning um fimm efstu sæti listans fór fram dagana 16. febrúar - 13. mars, en samkvæmt framboðsreglum Framsóknar gerir kjörstjórn tillögu um skipan framboðslistans í heild að öðru leyti til stjórnar kjördæmissambandsins sem leggur hann fyrir aukakjördæmisþing.​

„Framboðslisti Framsóknar í Norðvesturkjördæmi er skipaður öflugu fólki með fjölbreyttan bakgrunn sem á það sameiginlegt að vilja vinna að stöðugum umbótum á samfélaginu á grunni samvinnu og jafnaðar. Á listanum fer saman víðtæk þekking, reynsla, framsýni og kraftur til að vinna að öflugu samfélagi, með öruggar grunnstoðir og fjölbreytt atvinnulíf í öndvegi,“ segir á kfnv.is.

Í oddvitasæti listans situr Stefán Vagn Stefánsson, yfirlögregluþjónn og forseti sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, háskólanemi og formaður Sambands ungra Framsóknarmanna í öðru sæti en Halla Signý Kristjánsdóttir, alþingismaður skipar þriðja sætið. Fjórða sætið er Friðriks Más Sigurðssonar, bónda og formanns byggðarráðs Húnaþings vestra og fimmta sætið vermir Iða Marsibil Jónsdóttir, skrifstofu- og mannauðsstjóri og forseti bæjarstjórnar Vesturbyggðar. Sveinn Bernódusson, járnsmíðameistari í Bolungarvík, skipar svo heiðurssæti listans.

​Framboðslisti Framsóknar í Norðvesturkjördæmi

  1. Stefán Vagn Stefánsson, Sauðárkróki - Yfirlögregluþjónn og forseti sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar
  2. Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Borgarbyggð - Háskólanemi og formaður Sambands ungra Framsóknarmanna
  3. Halla Signý Kristjánsdóttir, Önundarfirði - Alþingismaður
  4. Friðrik Már Sigurðsson, Húnaþingi vestra - Bóndi og formaður byggðarráðs Húnaþings vestra

 

  1. Iða Marsibil Jónsdóttir, Vesturbyggð - Skrifstofu- og mannauðsstjóri og forseti bæjarstjórnar Vesturbyggðar
  2. Elsa Lára Arnardóttir, Akranesi - Aðstoðarskólastjóri, formaður bæjarráðs Akraneskaupstaðar og f.v. alþingismaður
  3. Þorgils Magnússon, Blönduósi - Skipulags- og byggingarfulltrúi
  4. Gunnar Ásgrímsson, Sauðárkróki - Háskólanemi

 

  1. Kolbrún Ösp Guðrúnardóttir, Stykkishólmi - Nemi
  2. Jóhanna María Sigmundsdóttir, Búðardal - Verkefnastjóri og f.v alþingismaður
  3. Ragnheiður Ingimundardóttir, Strandabyggð – Verslunarstjóri
  4. Gauti Geirsson, Ísafirði - Nemi

 

  1. Sæþór Már Hinriksson, Sauðárkróki - Tónlistarmaður
  2. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, Borgarbyggð - Lögreglumaður
  3. Sigurdís Katla Jónsdóttir, Dalabyggð -Nemi
  4. Sveinn Bernódusson, Bolungarvík - Járnsmíðameistari

Fleiri fréttir