Framboðslisti VG í Norðvesturkjördæmi

Fundur kjördæmisráðs Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi fagnar nýsamþykktum framboðslista í kjördæminu. Einnig þakkar hann Jóni Bjarnasyni störf hans  í þágu vinstri grænna í norðvesturkjördæmi og óskar honum alls hins besta. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu en flokkurinn fundaði á Hólmavík í gær.

„Fundurinn undirstrikar að nú sem aldrei fyrr er þörf á því að róttækur vinstri flokkur hafi styrk til að vinna að  áframhaldandi uppbyggingu íslensk velferðarsamfélags,“ segir loks í tilkynningunni.

Framboðslisti vinstri grænna í norðvesturkjördæmi.

1.    Lilja Rafney Magnúsdóttir

2.      Lárus Ástmar Hannesson

3.      Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir

4.      Matthías Lýðsson

5.       Reynir Eyvindsson

6.       Valdís Einarsdóttir

7.       Trausti Sveinsson

8.    Helena María Jónsdóttir Stolzenwald

9.     Bjarki Þór Grönfeldt

10.     Sigrún Valdimarsdóttir

11.    Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir

12.     J. Brynjólfur H. Ásþórsson

13.     Guðrún Margrét Jónsdóttir

14.     Helgi Guðmundsson

15.     Vigdís Kristjánsdóttir

16.    Rögnvaldur Ólafsson

Fleiri fréttir