Framhald tilraunaverkefnis um hækkað menntunarstig á NLV

Menntamálaráðherra og rektor Háskólans á Bifröst undirrituðu á miðvikudaginn í síðustu viku samning um framhald tilraunaverkefnis um hækkað menntunarstig í Norðvesturkjördæmi.

Meginmarkmið samningsins er að efla ráðgjöf til fyrirtækja um nám á vinnustað, auka samstarf atvinnulífs og fræðsluaðila í kjördæminu um stafstengt nám, fjölga einstaklingum sem ljúka iðnnámi og efla íslenskukunnáttu innflytjenda.

Verkefnið er liður í átaki til þess að hækka menntunarstig í íslensku atvinnulífi og eitt af nokkrum verkefnum sem sett voru af stað í framhaldi af kjarasamningum aðila vinnumarkaðarins  í maí 2011.

Verkefnið felur einkum í sér átak í raunfærnimati, starfstengdum námskeiðum og íslenskukennslu á vinnustöðum. Áherslurnar byggja á ítarlegri greiningu á þörfum atvinnurekenda og starfsmanna fyrir nám. Sú greining var framkvæmd á síðasta ári með umfangsmikilli viðtalsrannsókn og spurningakönnunum á meðal íbúa í kjördæminu.

Háskólinn á Bifröst ber ábyrgð á verkefninu sem nær til eins árs en framkvæmd þess verður unnin í náinni samvinnu við símenntunarmiðstöðvar og framhaldsskóla í kjördæminu. Norðvesturkjördæmi er einstaklega auðugt af öflugum fræðslustofnunum en þar eru m.a. starfandi þrjár símenntunarmiðstöðvar, fimm framhaldsskólar og þrír háskólar auk háskólasetra. Menntunarstig í kjördæminu er umtalsvert lægra en á landsvísu skv. vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands. Samningur þessi veitir einstakt tækifæri til að auka menntun íbúa í kjördæminu og efla fræðslu á vinnustöðum.

Fréttatilkynning

 

Fleiri fréttir