Framhaldsrannsókn á sauðfjárdauða

Í fréttatilkynningu á vef Matvælastofnunar segir frá því að stofnunin vinni nú að undirbúningi að framhaldi rannsóknar á auknum sauðfjárdauða í fyrra vetur, í samvinnu við aðrar stofnanir og samtök.
„Rannsóknir sem gerðar hafa verið fram að þessu hafa ekki gefið afgerandi svör. Að því er virðist var um samspil margra þátta að ræða en ekki er hægt að útiloka undirliggjandi orsakir og því er þörf á frekari rannsóknum,“ segir m.a. í fréttatilkynningunni.
„Valdir verða bæir vítt og dreift um landið sem urðu fyrir miklum afföllum og þeim fylgt náið eftir, tekin sýni og þau borin saman við þá bæi þar sem engin vandamál voru til að kanna hvort einhverjir þættir finnist sem geti skýrt þennan mun. Beðið er svara frá ráðuneytinu varðandi fjárhagslegan stuðning áður en rannsóknin getur hafist af fullum krafti,“ segir einnig í fréttatilkynningunni.
Ennfremur segir: „Þegar heildarmyndin er skoðuð út frá þeim rannsóknum sem framkvæmdar hafa verið hingað til, bendir allt til þess að vandamálið sé samspil margra þátta og má þar einna helst nefna tíðarfar. Sökum mikillar vætutíðar síðasta sumars var erfitt að heyja og má ætla út frá fóðursýnaniðurstöðum að víða hafi heyforðinn samanstaðið af úr sér sprottnu grasi sem dugar skammt til að viðhalda þeirri orku sem fé þarf til að dafna, og ekki síst þegar fóstrin hjá ánum fara að taka til sín. Í kjölfarið tók við afar kaldur vetur og vor sem kallaði enn frekar á orku sem að fóðrið innihélt ekki.“