Framkvæmdasjóður ferðamannastaða veitir styrki

Alls hafa fimmtíu verkefni fengið styrk úr Framkvæmda­sjóði ferðamannastaða fyrir samtals 244 milljónir króna fyrir árið 2014. Verkefnin fá styrk til hönnunar og framkvæmda á ferðamannastöðum.

Þeir staðir sem á Norðurlandi sem fengu styrk voru meðal annars:

Blönduósbær – Fuglaskoðun á Einarsnesi í Blönduósbæ. Kr. 4.085.000 styrkur til uppbyggingar á fuglaskoðunarstað við Blöndu. Markmið styrkveitingar er að byggja upp innviði fyrir fuglaskoðun og náttúrutengda ferðaþjónustu við Blönduós.

Sveitarfélagið Skagafjörður –Arnarstapi í Skagafirði: Lagfæring, hönnun, stígagerð og merkingar. Kr.3.700.000 styrkur til hönnunar og framkvæmda í kringum minnismerki um Stephan G. Stephansson. Markmið styrkveitingar er að hlúa að þessu helsta kennileiti Skagafjarðar, bæta öryggi ferðamanna og styrkja aðstöðu með bættu aðgengi.

Æðarvarp ehf – Illugastaðir á Vatnsnesi. Kr. 665.000 styrkur til endurbóta á göngustíg, stækkun bílaplans og uppsetningar á salerni fyrir fatlaða. Markmið styrkveitingar er að bæta aðstöðu til að ráða við aukinn fjölda ferðamanna og tryggja gott aðgengi að náttúrlegu umhverfi til selaskoðunar.

Hér er hægt að sjá alla styrkina

Fleiri fréttir