Framkvæmdir á vellinum hjá Neista
Miklar framkvæmdir hafa verið að undanförnu á vellinum hjá hestamannafélaginu Neista, en búið er að gera snúningshringi í báðum endum vallarins svo hægt sé að halda kynbótasýningar á vellinum.
Á vef Neista er sagt frá því að allt sé orðið klárt fyrir síðsumarssýningu kynbótahrossa á Blönduósi sem hefst í dag.
Tryggva að moka möl í völlinn. Mynd: Neisti.net
Búið er að taka vel úr hólnum og nægt pláss fyrir snúning. Mynd: Neisti.net