Byrjað á framkvæmdum við Blöndubrú

Talsvert hefur verið fjallað um hve löngu tímabærar framkvæmdir við Blöndubrú á Blönduósi hafa verið en ástand hennar hefur verið sagt með öllu óásættanlegt. Þetta kom m.a. fram í bókun bæjarráðs Blönduósbæjar í september árið 2013. Þar segir að brúin sé „ekki nægjanlega breið fyrir akandi umferð og hættuleg fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur.“ Mynd/BÞ

Framkvæmdir Vegagerðarinnar á Blöndubrú á Blönduósi eru hafnar. Á meðan á lagfæringu brúarinnar stendur verður önnur akreinin lokuð og umferð stýrt með ljósum frá 16. ágúst til 1. desember næstkomandi. Í tilkynningu frá Vegagerðinni er athygli vakin á því að akbrautin er einungis 3,0 metrar að breidd og vegfarendur eru beðnir um að gæta fyllstu varúðar. 

Á húna.is kemur fram að til standi að taka burt steyptu stéttina sem liggur sunnan megin á brúnni en við það mun akreinin á brúargólfinu breikka um 60-70 sentímetra. Sett verður nýtt vegrið sunnan megin á brúna, brúargólfið brotið upp og nýtt steypt í staðinn. Vegurinn beggja megin brúarinnar verður svo breikkaður í samræmi við breikkun akbrautar á brúnni. Þá mun stéttin norðan megin á brúnni standa óbreytt.

Fleiri fréttir