Framlag til Norðurlands vestra úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga 428 milljónir

Áætlað framlag úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk á Norðurlandi vestra á árinu 2012 nemur um 428 milljónum króna. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs um endurskoðaða áætlun á úthlutun framlaganna, á grundvelli 3. gr. reglugerðar, nr. 510/2012.

Samkvæmt frétt á heimasíðu innanríkisráðuneytisins er útgjaldaþörf Norðurlands vestra tæpar 509 milljónir króna en rúm 81 milljón er áætluð í útsvarstekjur. Sem fyrr segir er framlag Jöfnunarsjóðs til Norðurlands vestra um 428 milljónir króna en heildarupphæð framlaganna eru rúmir 9,6 milljarðar króna, og hlutur Norðurlands vestra því um 4,4% af heildarupphæðinni.

 „Áætluð útgjaldaþörf þjónustusvæða/sveitarfélaga er samtals 12.061,4 m.kr. Þar af nemur áætlun útsvarstekna vegna 0,25% hlutdeildar  þjónustusvæða/sveitarfélaga í útsvarsstofni vegna þjónustu við fatlað fólk 2.402,0 m.kr. á árinu. Mismunur áætlaðrar útgjaldaþarfar og áætlaðra útsvarstekna þjónustusvæða/sveitarfélaga er áætluð almenn framlög úr Jöfnunarsjóði vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2012 og nema þau 9.659,4 m.kr.,“ segir á heimasíðu Innanríkisráðuneytisins.

Í reglugerð um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2012 segir:

Tekjur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk skulu nema 0,95% af útsvarsstofni, auk sérstakra framlaga á fjárlögum og úr Fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, vegna sölu og leigu eigna sem nýttar eru í þjónustu við fatlað fólk. Skulu tekjurnar renna í sérstaka deild innan Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.

Jöfnunarframlög vegna þjónustu við fatlað fólk skiptast í: Almenn framlög vegna þjónustu við fatlað fólk og vegna biðlista, framlög vegna breytingakostnaðar, framlög vegna notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA), framlög til Fasteignasjóðs Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga svo og önnur framlög.

 

Fleiri fréttir