Framsagnarkeppni í Húnavatnsþingi
Framsagnarkeppni grunnskólanna í Húnavatnsþingi var haldin þriðjudaginn 7. mars í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Keppendur voru tíu frá fjórum skólum, Höfðaskóla á Skagaströnd, Blönduskóla á Blönduósi, Húnavallaskóla og grunnskóla Húnaþings vestra á Hvammstanga.
Keppnin er tileinkuð Grími heitnum Gíslasyni, fréttaritara og bónda frá Saurbæ í Vatnsdal, og er hún jafnframt liður í Stóru upplestrarkeppninni sem haldin er um allt land og miðar að því að vekja athygli og glæða áhuga nemenda á vönduðum upplestri og framburði.
Keppendur lásu brot úr sögu Andra Snæs Magnasonar, Bláa hnettinum, ljóð eftir Steinunni Sigurðardóttur og ljóð að eigin vali. Það var Iðunn Eik Sverrisdóttir í Húnavallaskóla sem bar sigur úr býtum, í öðru sæti varð Isaiah Davíð Þuríðarson frá Blönduskóla og Ásdís Aþena Magnúsdóttir í Grunnskóla Húnaþings vestra í því þriðja. Að þessu sinni voru veitt aukaverðlaun fyrir góða frammistöðu þar sem allir keppendur stóðu sig mjög vel og erfitt reyndist að gera upp á milli keppenda. Var það Embla Sif Ingadóttir frá Höfðaskóla sem hlaut þau fyrir ljóðalestur sinn.
Allir keppendur fengu tvenn bókaverðlaun og að auki veittu Raddir, samtök um vandaðan upplestur og framsögn, peningaverðlaun fyrir þrjú efstu sætin. Einnig fékk sá skóli sem hlaut 1. sætið farandskjöld sem hann varðveitir fram að næstu keppni.
Dómnefnd skipuðu þau Sigrún Einarsdóttir, Sigrún Grímsdóttir og fulltrúi Radda, Þorleifur Hauksson.