Framsókn fundar í Skagafirði

Framsóknarflokkurinn verður með haustfund miðstjórnar flokksins nú um helgina á Mælifelli á Sauðárkróki. Á fundinum verður félagsstarf flokksins á komandi starfsári tekið til umræðu ásamt því að kosnir verða fulltrúar í málefna- og fræðslu- og kynningarnefndir flokksins.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, mun ávarpa miðstjórnarfundinn í dag kl. 13:10 og verður sá dagskrárliður fundarins opinn fjölmiðlum. Miðstjórnarfundinum lýkur um hádegisbil á sunnudeginum.

Héraðshátíð Framsóknarmanna í Skagafirði verður haldið í kvöld á Mælifelli þar sem þingmenn Framsóknar munu halda uppi fjörinu. Gunnar Bragi Sveinsson mun setja hátíðina, Ásmundur Einar Daðason fer með gamanmál, Sigurður Ingi Jóhannsson flytur hátíðarræðu og Birkir Jón Jónsson verður veislustjóri. Með kvöldinu mun svo Geirmundur Valtýsson taka við keflinu og dúndra upp dansleik.

Fleiri fréttir