Framsóknarmenn ánægðir með Ásmund Einar

-Ásmundur Einar hefur sýnt að hann er kjarkmikill stjórnmálamaður þótt hann sé ekki nema 28 ára gamall. Hann hefur sýnt að hann er trúr þeim hugsjónum sem hann vill vinna að og telur augljóslega að þar eigi hann betur samleið með okkur, segir Gunnar Bragi Sveinsson þingflokksformaður Framsóknarflokksins.

-Það eru fjölmörg dæmi um að þingmenn skipti um flokka þannig að þetta er alls ekkert nýtt. Koma Ásmundar styrkir Framsóknarflokkinn, ekki síst til framtíðar litið því stjórnmálaflokkarnir eiga oft erfitt með að endurnýja sig. Framsóknarflokkurinn hefur einn flokka gengið í gegnum miklar breytingar og endurnýjun á fólki og stefnumálum en búum vitanlega að gömlum og góðum grunni. Eins og flestir vita er öflugt og gott starf í Framsóknarflokknum í kjördæminu þannig að Ásmundur gengur inn í gott félagsstarf sem ég veit að mun taka honum vel. Gunnar Bragi segir að það sem hann þekki til skoðana hans á ákveðnum málum þá líkar honum það vel og nefnir dæmi um afstöðu til Evrópusambandsins en þar séu þeir á sömu línu. -Ég hlakka því til samstarfsins við Ásmund Einar, segir Gunnar Bragi.

Þá hefur stjórn Kjördæmissambands framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi samþykkt eftirfarandi ályktun í tilefni af komu Ásmundar Einars Daðasonar í Framsóknarflokkinn:

Stjórn Kjördæmissambands framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi (KFNV) býður Ásmund Einar Daðason velkominn í Framsóknarflokkinn og fagnar liðsinni hans við að vinna að framgangi stefnumála flokksins, jafnt á landsvísu sem og í Norðvesturkjördæmi. Með aðild Ásmundar Einars að Framsóknarflokknum bætist þriðji þingmaðurinn við í raðir þingmanna Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi og hefur hann nú á að skipa flestum þingmönnum allra flokka í kjördæminu eða þriðjungi þeirra.

Stjórn KFNV lýsir yfir ánægju sinni með að sífellt fjölgar í hópi þess fólks sem vill leggja sitt af mörkum til að vinna að mikilvægum framfaramálum í þágu þjóðarinnar og styður þ.a.l. stefnu Framsóknarflokksins. Ásmundur Einar hefur vakið athygli fyrir vasklega framgöngu á Alþingi Íslendinga og þykir ljóst að með aðild hans að þingflokki framsóknarmanna mun þungi stefnuáherslna flokksins aukast enn frekar.

Fleiri fréttir