Framtíð Ferðaþjónustunnar Hveravöllum óljós

Ferðaþjónustan á Hveravöllum verður lokuð yfir vetrarmánuðina þar sem enginn styrkur fékkst frá ríkinu svo unnt væri að halda uppi áframhaldandi rekstri þar í vetur. Kom þetta fram á 110. fundi hreppsnefndar Húnavatnshrepps sem fór fram 5. október sl.

Það var Jón Gíslason, varamaður í hreppsnefndinni, sem bar upp málið og vildi vita hver framtíðaráform rekstursins á Hveravöllum væri. Hann lagði fram eftirfarandi bókun:

„Að gefnu tilefni og í ljósi aðstæðna á Hveravöllum skorar undirritaður á fulltrúa Húnavatnshrepps í stjórn Hveravallafélagsins, að vinna ötullega nú á haustdögum að útfærslu á framtíðar uppbyggingu og fyrirkomulagi rekstrar á Hveravöllum, og meta ýtarlega þá valkosti og möguleika sem Hveravallafélagið hefur við núverandi aðstæður í þjóðfélaginu og taka ákvarðanir um það sem fyrst.“

Í fundargerðinni kemur fram að tilboð hafa borist um reksturinn á Hveravöllum og hefur KPMG verið falið að fara yfir þær umsóknir. Einnig eru vonir bundnar við framlag úr Framkvæmdarsjóði ferðaþjónustunnar til uppbyggingar á svæðinu.

Samkvæmt vefmiðlunum huni.is tilheyra Hveravellir Húnavatnshreppi og sér Hveravallafélagið ehf. um rekstur svæðisins sem er nær alfarið í eigu sveitarfélagsins. Talið er að þangað sæki um 20-30 þúsund manns árlega.

Fleiri fréttir