Framtíð fyrir brothættar byggðir

Árið 2012 hófst tilraunaverkefni á Raufarhöfn að frumkvæði Byggðastofnunar. Verkefnið sem hlaut heitið „Brothættar byggðir“ nær nú að auki til Bíldudals, Breiðdalshrepps og Skaftárhrepps. Nú hefur verið ákveðið að auglýsa eftir fleiri þátttakendum í verkefnið. Sagt er frá þessu á vef Byggðastofnunar.

Markmiðið er m.a. að leiða fram skoðanir íbúanna sjálfra á framtíðarmöguleikum heimabyggðarinnar og leita lausna á þeirra forsendum, í samvinnu við ríkisvaldið, landshlutasamtök, atvinnuþróunarfélag, sveitarfélagið, brottflutta íbúa og aðra.

Aðferðin byggist á að halda tveggja daga íbúaþing þar sem rædd er staða byggðarinnar og leiðir til úrlausna. Á íbúaþinginu leggja íbúarnir sjálfir til umræðuefni og raða viðfangsefnunum eftir mikilvægi. Framhald verkefnisins byggir á niðurstöðum íbúaþingsins og eru íbúar upplýstir um hvernig skilaboð þingsins eru höfð til hliðsjónar og málum fylgt eftir, t.d. með því að kynna áherslur íbúa fyrir ríkisvaldi og stofnunum.

Í verkefnisstjórn á hverjum stað sitja fulltrúar Byggðastofnunar, sveitarfélagsins, landshlutasamtaka sveitarfélaga, atvinnuþróunarfélags og íbúa. Verkefnið hefur nú þegar skilað umtalsverðum árangri við að virkja heimamenn.

Svæðin fjögur sem nú er unnið á eiga sameiginlegt að þar hefur á síðustu árum verið mikil fólksfækkun og skekkt aldursdreifing. Allir þessir staðir eru á svokölluðum köldum svæðum og skortur er á húsnæði, sérstaklega íbúðarhúsnæði á leigumarkaði.

Verið er að móta verkefnið til framtíðar, byggt á þeirri reynslu sem þegar hefur fengist, þannig að það geti orðið verkfæri eða viðvarandi áætlun til að taka á alvarlegum vanda einstakra byggðarlaga, vegna neikvæðrar íbúaþróunar og/eða vanda í atvinnulífi.

Ákveðið hefur verið að auglýsa eftir umsækjendum um þátttöku í verkefninu og hér má sjá hvernig standa skal að þeirri umsókn. Umsóknarfrestur er til 15. maí næstkomandi. Auglýsingu sem birtist í dagblöðum og nánari upplýsingar má sjá á vef Byggðastofnunar.

Fleiri fréttir