Framúrskarandi fyrirtæki á Norðurlandi vestra

Á lista sem Creditinfo birti nýlega yfir frammúrskarandi fyrirtæki í landinu eru nokkur fyrirtæki staðsett á Norðurlandi vestra. Í frétt sem birtist um málið í gær vantaði fyrirtæki og er beðist velvirðingar á þeim leiðu mistökum. Hér er því nýr listi yfir fyrirtæki á Norðurlandi vestra sem eru á lista Creditinfo.

Um er að ræða Fisk Seafood ehf., Kaupfélag Skagfirðinga svf., Kaupfélag Vestur-Húnvetninga svf., Raðhús ehf. á Sauðárkróki (sem rekur verslunina Hlíðarkaup), Sláturhús KVH, Steinull hf., Sölufélag Austur-Húnvetninga svf., Tengil ehf. og Vörumiðlun ehf.

Þess má einnig geta að Hólmadrangur ehf. á Hólmavík er á listanum, FISK Seafood hf. á 50% í því fyrirtæki á móti Kaupfélagi Steingrímsfjarðar.

Fleiri fréttir