Framúrskarandi fyrirtæki á Norðurlandi vestra

Tólf fyrirtæki á Norðurlandi eru á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki ársins 2015, þar á meðal Steinull hf. og Vörumiðlun sem sjást hér á myndinni. Ljósm./BÞ
Tólf fyrirtæki á Norðurlandi eru á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki ársins 2015, þar á meðal Steinull hf. og Vörumiðlun sem sjást hér á myndinni. Ljósm./BÞ

Creditinfo hefur birt lista yfir þau 682 fyrirtæki af tæplega 35.842 sem skráð eru í hlutafélagaskrá sem stóðust styrkleikamat Creditinfo og teljast því vera Framúrskarandi fyrirtæki 2015. Þetta er í sjötta sinn sem Creditinfo gefur út listann en af þeim 682 fyrirtækjum sem komust á lista eru tólf þeirra á Norðurlandi vestra.

Þau fyrirtæki sem teljast framúrskarandi uppfylla ákveðin skilyrði í rekstri, hafa skilað rekstrarhagnaði þrjú ár í röð, eignir eru metnar á að minnsta kosti 80 milljónir króna og eiginhlutfall er 20% eða hærra. 

Framúrskarandi fyrirtæki ársins 2015 á Norðurlandi vestra eru:

  • Ámundarkinn ehf.
  • Friðrik Jónsson ehf.
  • Fisk Seafood ehf.
  • Kaupfélag Vestur-Húnvetninga (svf.)
  • Kaupfélag Skagfirðinga (svf.)
  • Ó.K. Gámaþjónusta-sorphirða ehf.
  • Raðhús ehf. (sem rekur Hlíðarkaup á Sauðárkróki)
  • Skarfaklettur ehf.
  • Sláturhús KVH ehf.
  • Steinull hf.
  • Tengill ehf.
  • Vörumiðlun ehf.

Lista yfir Framúrskarandi fyrirtæki 2015 má sjá hér. Feykir óskar eftir ábendingum ef fleiri fyrirtæki af Norðurlandi vestra eru á listanum og ekki eru talin upp hér að ofan. 

Fleiri fréttir