Fresta opnun skíðasvæðisins í Tindastóli

Þó svo veðrið sé skaplegt núna í augnablikinu í Skagafirði hefur veðurspáin ekki verið glæsileg og þegar haft áhrif á ýmis verkefni. Þannig hefur opnun skíðasvæðisins í Tindastóli verið frestað vegna slæmrar veðurspár en reiknað er með því að opna skíðasvæðið föstudaginn 23. nóvember.  

Veðurspáinfrá því í morgun er á þessa leið:

Strandir og Norðurland vestra

Norðan 8-13 m/s fram eftir morgni, en síðan 13-18. Snjókoma, talsverð snjókoma A-til seinni partinn. Frost 1 til 6 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag:
Norðan og norðvestan 13-18 m/s, en mun hægari SA-lands fram eftir degi. Snjókoma eða skafrenningur á N-verðu landinu, en úrkomulítið syðra. Frost 0 til 6 stig.

Á sunnudag:
Norðan- og norðvestan 13-18 m/s og snjókoma á N- og A-landi, en annars hægari og bjartviðri. Dregur úr vindi og ofankomu um kvöldið. Kólnandi veður.

Á mánudag:
Norðaustan 8-13 m/s og él NA-til, en annars bjartviðri. Frost 1 til 10 stig, mest inn til landsins.

Á þriðjudag:
Austlæg átt og víða dálítil sjókoma eða él, en úrkomulítið V-lands. Víða vægt frost.

Á miðvikudag og fimmtudag:
Útlit fyrir norðanátt með snjókomu eða slyddu víða um land.

Fleiri fréttir