FRÉTTATILKYNNING FRÁ SJÁVARÚTVEGS- OG LANDBÚNAÐARRÁÐHERRA
Að gefnu tilefni vill undirritaður taka fram að ráðuneytið fór eftir tilnefningum fagstofnana við skipan í starfshóp um dragnótaveiðar í Skagafirði.
18. september 2009 sendi ráðuneytið Veiðimálastofnun, Hafrannsóknarstofnuninni og BioPol á Skagaströnd ósk um tilnefningu í umræddan starfshóp. Tilefnið var umræða og krafa heimamanna í Skagafirði um að sett yrði bann við botnlægum veiðum í firðinum. Þar var um að ræða bæði undirskriftalista almennra borgara og áskorun frá félagi smábátaeigenda á svæðinu og áskorun frá sveitarstjórn sveitarfélagsins Skagafjarðar. Jafnframt var horft til skýrslu Hafrannsóknarstofnunar nr. 150 2010 sem fjallar um dragnótaveiðar í Skagafirði.
Í framhaldi af þessu bréfi bárust ráðuneytinu eftirtaldar tilnefningar:
Frá Hafrannsóknarstofnun: Jón Sólmundsson fiskifræðingur
Frá Veiðimálastofnun: Bjarni Jónsson fiskifræðingur
Frá BioPol: Halldór Gunnar Ólafsson framkvæmdastjóri
Val þessara manna var því ekki ákveðið af ráðherra.
Þá er rétt að það komi fram að umræddur starfshópur er ekki launaður sérstaklega heldur er um að ræða fast starf viðkomandi fyrir ofantaldar stofnanir.
Umræddur starfshópur hefur m.a. kallað eftir sérfræðiáliti þriggja aðila um málið en þeir eru:
Dr Þorleifur Eiríksson hjá Náttúrustofu Vestfjarða
Sigurður Guðjónsson fiskifræðingur hjá Veiðimálastofnunar
Dr. Stefán Óli Steingrímsson hjá Háskólanum á Hólum
Meðfylgjandi eru álitsgerðir þessara aðila og bréf sem sýna tilnefningu Veiðimálastofnunar.
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra