Freyja Dögg Frímannsdóttir ráðin svæðisstjóri RÚVAK

Freyja Dögg Frímannsdóttir hefur verið ráðin svæðisstjóri RÚVAK. Í fréttatilkynningu frá RÚV segir að svæðisstjóri verkstýri og beri ábyrgð á fréttaflutningi af landsbyggðinni í útvarpi, sjónvarpi og á vefnum en RÚV er með fréttamenn og fréttaritara í öllum landshlutum.

RÚV ætlar að efla starfsemi sína á landsbyggðinni á næstu misserum og framundan er vinna við endurskipulagningu, þróun og uppbyggingu til framtíðar en Freyja mun leiða þessa vinnu. Svæðisstjóri mun stýra starfsemi RÚV á Akureyri sem og annarri starfsemi á landsbyggðinni. Ýmsar breytingar eru áformaðar, meðal annars verður lögð stóraukin áhersla á miðlun svæðisbundinna frétta á vefnum,“ segir í tilkynningunni.

Freyja Dögg starfaði um nokkurra ára skeið sem fréttamaður hjá RÚV á Akureyri auk þess sem hún hefur umtalsverða reynslu af verkefnastjórnun og vinnslu fyrir vef.  Hún er með meistaragráðu í upplýsingatæknifræði.

Fleiri fréttir