Friðarhlaup - Leggjum rækt við frið
Friðarhlaupið fer fram í Húnavatnshreppi á morgun, þriðjudaginn 2. júlí. Hlaupið verður frá þjóðvegi 1 upp Reykjabraut og að Húnavöllum. Áætlað er að lagt verði af stað um klukkan 12:30 og komið að Húnavöllum um klukkan 13:30, þar sem plantað verður friðartré.
Friðarhlaupið (World Harmony Run) er alþjóðlegt kyndilboðhlaup sem er kennt við indverska friðarfrömuðinn Sri Chinmony (Sri Chinmony Oneness-Home Peace Run). Tilgangur hlaupsins er að efla frið, vináttu og skilning manna og menningarheima á milli. Sem tákn um þessa viðleitni bera hlaupararnir logandi kyndil, sem berst manna á milli í þúsundum byggðarlaga í yfir hundrað löndum.
Friðarhlaupið safnar ekki fé og leitar ekki eftir stuðningi við pólitískan málstað. Markmið hlaupsins er einfaldlega að auka meðvitund um að friður, vinátta og skilningur hefst í hjarta hvers og eins. Friðarhlaupið fer fram í öllum heimsálfum ár hvert og er þetta í 20. skiptið sem hlaupið er á Íslandi.
Allir sem vilja hlaupa eru hvattir til að mæta og vera með sem og þeir sem vilja vera við gróðursetningu friðartrésins. Húni.is segir frá þessu.