Friðarhlaup og Pollamót KSÍ á Blönduósvelli í dag
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Íþróttir
02.07.2013
kl. 08.28
Friðarhlaupið mun fara í gegnum Blönduós í dag, þriðjudaginn 2. júlí, um kl. 15:00 og stoppa á íþróttavellinum þar sem hlaupnir verða nokkrir hringir og gefst krökkum tækifæri til að halda á kyndlinum og taka þátt í hlaupinu.
Pollamót KSÍ í knattspyrnu verður í gangi hjá 6. flokk karla á vellinum á sama tíma og Friðarhlaupið. Nú er um að gera að fjölmenna á Blönduósvöll og fylgjast með þessum viðburðum. Húni.is segir frá þessu.