Friðrik Ómar með tónleika á Blönduósi
Friðrik Ómar er á tónleikaferð um landið og ætlar hann að halda tónleika í Blönduóskirkju 8. apríl næstkomandi. Platan Kveðja með Friðriki Ómari kom út í nóvember á síðasta ári. Platan varð ein sú mest selda á landinu fyrir jólin en hún inniheldur ýmsa sálma og saknaðarsöngva flutta af Friðrik Ómari í útsetningum hans sjálfs og Þóris Úlfarssonar píanóleikara.
Vegna mikillar eftirspurnar hefur Friðrik Ómar verið að fylgja velgengni plötunnar eftir í kirkjum víðsvegar um landið. Hann hélt nokkra tónleika í mars og heldur ferðinni áfram í apríl. Á tónleikunum flytur Friðrik lög eins og Hærra minn guð til þín, Heyr mína bæn, Kveðja, Söknuður, Í bljúgri bæn og Ave.
Samkvæmt tónleikadagskránni verða tónleikarnir í Blönduóskirkju þann 8. apríl þeir einu á Norðurlandi vestra. Daginn eftir verða tónleikar í Siglufjarðarkirkju. Allir tónleikarnir hefjast kl. 20:30 en húsið opnar kl. 20:00. Miðaverð er aðeins 2500 krónur en miðasala er einungis við innganginn.