Frítt í þrek og sund fyrir eldri borgara
Íþróttamiðstöðin á Blönduósi ætlar að bjóða fólki 67 ára og eldri frítt í þrek og sund í apríl. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá starfsfólki Íþróttamiðstöðvarinnar á Blönduósi sem birt var á heimasíðu Blönduósbæjar.
„Með þessu viljum við hvetja eldri borgara til að koma kynna sér það sem við höfum upp á að bjóða. Þreksalur, sundlaug, heitir pottar, gufa og alltaf heitt á könnunni hjá okkur,“ segir í tilkynningunni.
Marjolijn van Dijk sjúkraþjálfari ætlar að bjóða upp á frían tíma í sundleikfimi miðvikudaginn 10. apríl frá klukkan 09:00 til 10:00.