Frjálslyndir vilja rjúfa þing
Stjórn Frjálslynda flokksins gerir þá kröfu að þing verði rofið og boðað til kosninga eins fljótt og verða má samkvæmt ályktun stjórnar flokksins. Þetta er nauðsynlegt vegna þess að niðurstöður atkvæðagreiðslu gærdagsins varðandi Landsdóm sýndu og sönnuðu að núverandi þingmenn eru ekki í stakk búnir til að takast á við það verkefni að skapa sátt við almenning í landinu.
Núverandi Alþingi sýndi og sannaði að pólitískar flokkslínur skipta meira máli en hagsmunir almennings og að enginn vilji er til að taka á pólitískri samspillingu.
Núverandi Alþingi sýndi engan vilja til þessa að gera upp fortíðina og draga til ábyrgðar þá sem raunverulega hafa valdið þjóðinni ómældu tjóni sem almenningur ber nú skaðann af með skertum lífskjörum um ókomna framtíð.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.