Frumsýnt á Blönduósi annað kvöld

Leikfélag Blönduóss frumsýnir leikritið Dagbókin hans Dadda annað kvöld, föstudagskvöldið 28. mars klukkan 20:00 í Félagsheimilinu á Blönduósi. Sýningin í ár er sett upp í samstarfi við Dreifnám í A-Hún og er meirihluti nemenda sem tekur þátt í leiksýningunni með einhverjum hætti og fá þau einingu fyrir.

Höfundur verksins er Sue Townsend og þýðandi Guðný Halldórsdóttir. Leikstjóri er Ólafur Jens Sigurðsson og er þetta í fyrsta skipti sem hann leikstýrir hjá félaginu. Alls koma að þrjátíu manns að uppsetningunni og eru mörg ný andlit í leikarahópnum.

Næstu sýningar eru laugardaginn 29. mars klukkan 20:00, sunnudaginn 30. mars klukkan 17:00 og þriðjudaginn 1. apríl klukkan 20:00. Miðaverð er 2.500 krónur en 2.000 krónur fyrir ellilífeyrisþega, öryrkja og börn 14 ára og yngri.

Norðlenska sjónvarpsstöðin N4 var á Blönduósi á dögunum og líkti á æfingu hjá leikfélaginu. Afrekstur þess má sjá í þættinum Að norðan.

Vakin er athygli á því að í einu atriði í sýningunni er notað svokallað „black light“ ljós.

Fleiri fréttir