Fullveldissinnar standa ekki að Breiðfylkingunni

Samtök Fullveldissinna sem eru stjórnmálasamtök stofnuð þann 12.maí 2009 vilja leiðrétta þann misskilning sem hefur gætt í fréttaflutningi þar sem samtökin eru talin standa að Breiðfylkingunni (Borgarahreyfingin, Frjálslyndi flokkurinn og Hreyfingin). Í yfirlýsingu frá samtökunum segir að nokkrir félagsmenn í Samtökum fullveldissinna hafi setið fundi í upphafi þessa samstarfs en hafa ekki tekið þátt í stofnun Breiðfylkingarinnar.

Samtök fullveldissinna munu bjóða fram til næstu alþingiskosninga, sem hefur verið  yfirlýst stefna frá stofnun samtakana. Samtökin útiloka ekki að ganga til samstarfs við aðra um framboð sem þau eiga málefnalega samleið með og vilja hafna aðild að ESB, segja sig frá Schengen svæðinu og taka upp fríverslunarsamning við ESB eins og Sviss í stað EES samningsins.

Fleiri fréttir