Funda um stöðu og málefni sauðfjárbænda

Búnaðarsamband Húnaþings og Stranda og Félag sauðfjárbænda í Skagafirði hafa boðað til til opins umræðufundar um stöðu og málefni sauðfjárbænda um þessar mundir. Fundurinn verður haldinn í Félagsheimilinu á Blönduósi á morgun, miðvikudaginn 30. ágúst kl. 20:00.

Framsögu munu hafa:

-        Ágúst Andrésson, formaður Landssamtaka sláturleyfishafa

-        Oddný Steina Valsdóttir, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda

-        Sigríður Ólafsdóttir, ráðunautur á rekstrarsviði RML

Sveitarstjórnarfólki af svæðinu, fulltrúum SSNV, þingmönnum norðvestur kjördæmis og fleiri ráðamönnum hefur einnig verið boðið á fundinn.

Í tilkynningu frá fundarboðendum eru allir sauðfjárbændur hvattir til að mæta, láta rödd sína heyrast og koma sínum skoðunum á framfæri. 

Fleiri fréttir