Fundað verður með ráðherra um löggæslumál í Húnaþingi vestra
Löggæslumál á Norðurlandi vestra, ekki hvað síst í Húnaþingi vestra, hafa verið mikið í umræðunni í kjölfar þess þegar bíll fór í höfnina á Hvammstanga 24. ágúst sl. Sveitarstjórn og byggðaráð Húnaþings vestra hefur fjallað um viðbragðstíma lögreglu, og einnig hefur verið fjallað um aðstæður á Blöndubrú vegna viðhalds þar.
Sveitarstjórn Húnaþings vestra lagði á fundi sínum síðast liðinn fimmtudag fram bókum um löggæslu í héraðinu. Byggðarráð hafði áður fjallað um málið á fundi 5. september, í kjölfars þess að tvær klukkustundir liðu frá því að útkall barst þar til lögregla kom á vettvang á Hvammstanga.
Í bókun sem lögð var fram á fundinum segir meðal annars: „Sveitarstjórn Húnaþings vestra tekur undir áhyggjur byggðaráðs af óviðunandi stöðu og fámenni lögreglunnar á Norðurlandi vestra.“ Þá ítrekar sveitarstjórn þær kröfur sem komið hafa fram allt frá því að lögregluumdæmi voru sameinuð árið 2014, að á Hvammstanga verði mönnuð lögreglustöð til að sinna því stóra svæði sem sveitarfélagið nær yfir.
„Viðbragðstími lögreglu þegar alvarleg atvik eiga sér stað er eins og dæmin hafa sannað með öllu óviðunandi og veldur því að hætta skapast og íbúar upplifa óöryggi. Við það verður ekki búið lengur,“ segir í bókun sveitarstjórnar. Þá kemur fram í bókunni að til að hægt sé að manna lögreglustöð á Hvammstanga þurfi að fjölga í lögregluliði umdæmisins alls og gerir sveitarstjórn kröfur um að svo verði gert hið allra fyrsta.
Byggðaráð Húnaþings vestra fjallaði aftur um málið á fundi sl. mánudag. Höfðu þá borist gögn frá lögreglustjóra Norðurlands vestra um vaktafyrirkomulag lögreglunnar. Samkvæmt því mun vaktir vera þannig að á tveimur vöktum eru fjórir lögreglumenn á annarri stöðinni en þrír lögreglumenn á hinni stöðinni. Því eru alls sjö lögreglumenn á vakt hverju sinni.
Fram kom á fundi byggðaráðs með lögreglustjóra að ekki væri til fjármagn til að kalla menn út á aukavaktir þegar um forföll er að ræða og því hefur komið fyrir að aðeins einn lögreglumaður er starfandi á svæðinu sem nær frá miðri Öxnadalsheiði að miðri Holtavörðuheiði. Þá er unnið að þjálfun starfsmanna, s.s. skot- og valdbeitingarþjálfun, á venjubundnum vöktum starfsmanna sem gerir viðbragðstíma lengri en annars.
Þá kemur fram í fundargerð byggðaráðs að enn sé beðið eftir gögnum frá lögreglu um samskipti við 112 þegar áðurnefnd atvik varð þann 24. ágúst og áhættumati sem gert hefur verið fyrir svæðið. Loks segir í fundargerðinni að ráðherra hafi staðfest fundartíma þann 21. september nk. Um löggæslumál í Húnaþingi vestra.