Fundarboð Húnavatnshrepps

Húnavatnshreppur hefur sent frá sér tvö fundarboð í næstu viku. Annars vegar er það almennur fundur haldinn í Fjallskiladeild Grímstungu- og Haukagilsheiða mánudagskvöldið 16. apríl kl. 20:30 og hins vegar 119. fundur hreppsnefndar Húnavatnshrepps, en sá fundur verður haldinn miðvikudaginn 18. apríl 2012 kl. 13.00.

Íbúar í fjallskiladeild Grímstungu- og Haukagilsheiða eru hvattir til að mæta á fundinn og ræða um gangnatilhögun, upprekstur hrossa, smölun heimalanda og annað sem liggur þeim á hjarta.

Á dagskrá 119. fundar hreppsnefndar er fyrri umræða um ársreikning Húnavatnshrepps 2011, skýrsla sveitarstjóra, farið yfir fundargerðir og bréf og loks önnur mál. Hér má sjá nánar upplýsingar um dagskráliði.

 

Fleiri fréttir