Fundir um vegamál á Norðurlandi
Markaðsstofa Norðurlands er nú orðinn tengiliður ferðaþjónustunnar á Norðurlandi við Vegagerðina. Samkvæmt fréttatilkynningu frá Markaðsstofunni gefur þetta samkomulag, sem gert var við Vegagerðina, ferðaþjónustunni tækifæri á að koma á framfæri sínum áherslum varðandi þjónustu, viðhald og uppbyggingu vegakerfisins.
Af þessu tilefni mun Markaðsstofan boða til funda um vegamál þar sem ferðaþjónustuaðilar eru hvattir til að mæta og koma sínum sjónarmiðum á framfæri. Niðurstöður fundanna verða svo nýttar til að koma á framfæri við Vegagerðina áherslum um forgangsröðun verkefna á hverju svæði.
Fundirnir verða haldnir sem hér segir:
Föstudaginn 18. september
- Greifinn, Akureyri kl. 9:00 – 10:30
- Höllin, Ólafsfirði kl. 13:00 – 14:30
Þriðjudaginn 22. september
- Sel-Hótel, Mývatnssveit kl. 9:00 – 10:30
- Báran, Þórshöfn kl. 13:00 – 14:30
- Skúlagarður, Kelduhverfi kl. 16:30 – 18:00
Fimmtudaginn 1. október
- Kaffi Krókur, Sauðárkróki kl. 10:00 – 11:30
- Hótel Blönduós, Blönduósi kl. 13:00 – 14:30
- Sjávarborg, Hvammstanga kl. 15:30 – 17:00