Fundir um ferðamál á Norðurlandi

Markaðsstofa Norðurlands boðar til súpufunda í næstu viku um ferðamál á Norðurlandi. Fundirnir verða haldnir á Dalvík, Blönduósi og í Skúlagarði í Öxarfirði. Fundurinn á Blönduósi fer fram 16. október nk.

Tilgangur fundanna er að kynna starfsemi Markaðsstofunnar á árinu, þar á meðal vinnu stofunnar við samfélagsmiðlanna, heimasíðuna, www.nordurland.is, Ísland er meðetta, flugklasann Air66N, veturinn framundan auk ýmissa annarra mála sem unnið hefur verið við á árinu s.s, blaðamannaferðir, boðsferðir fyrir ferðaheildsala, kynningar og sýningar innanlands og erlendis.

Að lokinni kynningu viljum við kalla eftir umræðum um þessi mál en ekki síður áherslum og ábendingum vegna stefnumótunar fyrir næsta ár og verkefni sem æskilegt er að leggja áherslu á á komandi vetri og á næsta ári.

Fyrsti fundurinn verður haldinn í menningarhúsinu Bergi á Dalvík mánudaginn 15. október fyrir Eyjafjarðarsvæðið.

Annar fundurinn verður haldinn á veitingahúsinu Pottinum á Blönduósi þriðjudaginn 16. október fyrir Skagafjörð og Húnavatnssýslur.

Þriðji fundurinn verður haldinn í Skúlagarði í Öxarfirði miðvikudaginn 17. október fyrir Þingeyjasýslurnar.

Allir fundirnir hefjast klukkan 17 og er stefnt að því að þeim ljúki um klukkan 20.

Markaðsstofa Norðurlands mun bjóða upp á súpu og brauð á fundinum. Fundarstjóri verður Áskell Heiðar Ásgeirsson Landfræðingur.

Allir eru velkomnir á fundina og hvetur Markaðsstofan sveitarstjórnafólk sérstaklega til að mæta til að taka þátt í umræðum.

Skráning á fundina er hjá Maríu Axfjörð (maria@nordurland.is).

Fleiri fréttir